laugardagur, janúar 13, 2007

nýtt ár, dauði minn og að fara heim úr partíum

Já, gleðilegt nýtt ár krakkar mínir. Áramótin voru kannski ekki í gær en þetta er það fyrsta sem ég skrifa á nýju ári, sveitt. Ég vona að áramótin hafi verið ykkur afar ljúf og allir hafi farið í mega partí.
Eftir morgunsturtuna mína þurrkaði ég mér og hafði mig til fyrir að takast á við erfiðan laugardag og byrjaði svo að klæða mig í fötin mín. Ég var búinn að klæða mig í allar flíkurnar nema sokkana, ekki mjög eftirtektarvert hjá flestum en í mínu tilfelli eru þessar sokka-í-klæðningar öðruvísi. Ég lyfti einni löppinni upp og reyni að troða sokknum um löppina mína en ég er greinilega með svo lélegt jafnvægi að ég byrja að hoppa um til að detta ekki. Baðherbergið mitt er á tvemur hæðum(aðalbaðherbergið og svo koma tvær tröppur upp á hæð tvö. Einn daginn þegar ég er að hoppa og skoppa inni á baði að reyna að troða mér í helvítis sokkana þá mun ég hoppa einu hoppi of langt í átt að tröppunum og fljúga niður og drepa mig. Þetta er ég viss um.
Elísabet hélt upp á afmælið sitt í gær og það var hið skemmtilegasta teiti en það var einn stór galli, það var í árbænum. Þar sem ég bý í vesturbæ Reykjavíkur þá get ég ekki beint labbað heim á korteri, sérstaklega ekki núna í snjónum þannig að ef mér býðst far heim verð ég helst að taka það.
Mér var að vísu boðið að sofa á sófanum en það hljómaði ekkert svo sveitt.
Ótrúlegt en satt þá var ég kominn heim til mín um tvö leitið, heldur snemmt.
Takk fyrir fínt partí samt sem áður.

Lagið sem ég vil spila í jarðarförinni minni er "Danny Boy" með Johnny Cash.

2 ummæli:

Elísabet sagði...

Verði þér að góðu Daníel og takk fyrir komuna.

Allir ættu að eiga sitt jarðarfararlag. Þitt lag er sniðugt. Mitt jarðarfararlag er hins vegar Adagio eftir Tomaso Albinoni og tengist það nafninu mínu ekki neitt.

Halla sagði...

hey vó ég var líka í þessu afmæli.